23.9.2010 | 00:12
Er þetta eitthvað grín?
30 millj. á mánuði... eða milljón á dag!!!... í það að grafa sand.
Er ekkert gáfulegra hægt að gera við 150milljónir króna???
Í fyrstu virðist þetta allavegana vera algjörlega út í hött. Sennilega væri ódýrara að leggja bara dallinum og bjóða öllum upp á ódýrt flug með Erni í staðinn, bæði fyrir fólk og vörur.
Þvílíkt klúður... en allt í anda ríkisstjórnarinnar ekki satt?!
|
30 milljónir á mánuði til að dæla sandi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.6.2010 | 15:59
Ekki hagur viðskiptavina!
Það er alveg ljóst... að ef bónuskerfi er tekið upp í banka mun það bitna á viðskiptavinum. Bankinn og starfsmenn þess munu gera allt til að hafa sem mest upp úr krafsinu... sama hvað það kostar. Starfsmenn banka eru allir sölumenn og ber að taka orðum þeirra með varúð eins og allra annarra sölumanna. Þeim ber að hafa hag bankans í fyrsta sæti, sjálfan sig í öðru og viðskiptavininn í þriðja sæti. Svoleiðis hefur það alltaf verið í mínum huga.
"Að svo stöddu" þýðir í mínum huga "um leið og allir hætta að fylgjast með okkur"...
Vissulega er jákvætt að fólki sé launað fyrir vel unnin störf.... en af reynslunni held ég að bónuskerfi verði til þess fallið að starfsfólk muni ekki sýna eins vönduð vinnubrögð en ella. Fólk taldi sig hafa verið blekkt í lánatökum fyrir hrunið (þó oft þeim sjálfum að kenna ef menn lesa ekki lánaskilmála). Ef til vill voru þjónustufulltrúar of ákafir við að selja sökum bónuskerfis.
|
Hugtakið eyðilagt með rugli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.5.2010 | 23:00
Jón Gnarr kann mannasiði
Hafði gaman að því þegar Jón Gnarr sagði að hann vissi ekki að það mætti grípa frammí fyrir hinum í svona viðtölum. Í kjölfarið fékk hann sjálfur algjöra þögn þegar hann kom sínu á framfæri. Hinir mættu læra ýmislegt af Jóni að mínu mati.
|
VG útilokar samstarf við Sjálfstæðisflokk |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
23.10.2009 | 21:04
Af hverju er svona lítill munur á diesel og 95okt bensíni?
Voru ekki nýlega lagðar álögur á bensín, skatt sem hækkaði bensínlítran um 10-12kr?
Ef ég man rétt þá var sá skattur ekki lagður á dieselolíu.
Hvernig stendur þá á því að það sé ekki nema ca 2 kr. munur á bensíninu og dieselolíunni???
Vonandi þekkir einhver þetta mál betur en ég?
|
Eldsneytisverð hækkar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2009 | 11:56
Hver á Bónus!!!
Ætli bónusfjölskyldan sé ekki bara enn einu sinni að reyna að kaupa sér vinsældir... ekki vetir þeim af.
Ætli þetta bitni svo ekki mest á birgjunum sem eru píndir til að selja þeim á því verði sem þeim hentar.
Ég mun ALDREI versla í bónus!
|
9% verðmunur á Bónus og Krónunni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2009 | 03:16
Afskaplega vitlaust.
Get ekki séð hvaða vit er í þessu. Ef eitthvað er þá er lögreglan í raun í liði með mótmælendum. Lögreglumenn eru ríkisstarfsmenn og kreppan kemur alveg jafn hart niður á þeim og öllum öðrum. Þeir tóku alveg sömu lán og allir aðrir og sumir þeirra eru atvinnulausir í dag.
Það er alveg hægt að mótmæla án þess að haga sér eins og fífl og þykjast svo vera saklaus í einu og öllu þegar menn hafa lent í lögreglunni. Menn sem ögra lögreglu undir svona kringumstæðum hljóta að átta sig á því að einhverntíman þrýtur þolinmæðina. Kannski er það einmitt tilgangurinn hjá sumum, þ.e. að fá lögregluna til að taka í sig og væla svo eftirá. Þetta eru bara menn eins og við hin og þeir eru að öllum líkindum mjög óttaslegnir yfir því að þurfa að vernda þá sem þeir fyrirlíta eins og all margir landar sínir. Starf þeirra gerir þó það að verkum að þeir geta ekki staðið og mótmælt eins og aðrir þó svo að þeir séu alveg jafn ósáttir við stöðu mála.
Svo hefur sést til einstaklinga mæta með ung börn til að mótmæla.... þið hljótið að vera geðveik. Get ekki betur séð að þið séuð einhvernveginn að nota þau sem skjöld ef að ykkur er sótt. Þið hugsið amk. ekki um öryggi þeirra. Sá t.d. mann með ungbarn í fanginu sækjast að bíl forsætisráðherra við stjórnarráðið. Alveg hreint ótrúlegt.
Svo geta þessi skemmdarverk engan veginn átt rétt á sér. Þá þurfum við hin bara að borga!!!
|
Táragasi beitt á Austurvelli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.11.2008 | 01:46
Hvað tekur við?
Það er gott að fólk taki þátt í sínu samfélagi. Ég komst því miður ekki á þennan fund og sennilega komust færri að en vildu. Ég hugsa að þarna sé í raun mun betri vettvangur til mótmæla og málefnalegrar umræðu heldur en á Austurvelli.
Ég hef þó velt því fyrir mér að undanförnu fyrir hverju verið er að berjast og hvað það er í raun sem mótmælendur vilja ná í gegn. Hafa menn leitt hugann að því hvað gerist ef óskir þeirra verða uppfylltar? Hvað tekur við ef stjórn seðlabankans segir af sér og allir þeir ráðherrar sem einna harðast er deilt á?
Mér sýnist nokkuð ljóst úr þessu að þeir sem sitja enn í stjórn ætli sér að sitja þar áfram sem fastast. Verður landið eitthvað betur sett með aðra aðila við stjórn en þá sem nú sitja ... og fáum við eitthvað val um aðra? Munu ekki sömu einstaklingar bjóða sig fram í næstu kostningum?
Ég kann að hljóma heldur barnalega með þá von mína að nýr flokkur verði til sem bjóði sig fram til kosninga í næstu alþingiskosningum. Í slíkum flokki hefði ég viljað sjá hóp einstaklinga, vel menntaða án beinna hagsmuna í atvinnulífið. Ég get nefnilega ekki séð hvernig það geti gengið upp að ráðherrar og ráðstýrur geti sýnt fullkomið hlutleysi samhliða því að eiga hlut í eða reka eigið fyrirtæki. Það þykir fullkomnlega eðlilegt að starfsmaður fyrirtækis sinni ekki annarri vinnu en þeirri sem hann er ráðinn til. Landsmenn eiga ekki að þurfa að vera í vafa með slík mál.
Eins og staðan er núna virðist vera sem svo að allmargir alþingismenn og ráðherrar séu í full miklum tengslum við stór íslensk fyrirtæki og taki þátt í þeirra veislum o.s.frv. Ég vill ekki ganga svo langt að segja að þeir séu spilltir, þó svo að svo kunni vel að vera, heldur þykir mér það hreinlega óviðeigandi á allan hátt ef ráðamenn þjóðarinnar séu að sækja veislur eða hljóti einhver hlunnindi frá fyrirtækjum landsins. Slíkt má mistúlka á svo ótal vegu. Svo hefur forseti okkar, Ólafur Ragnar Grímsson ekki beint sýnt gott fordæmi í þeim málum.
Ég get ekki heldur séð tilganginn með því að fá ráðherra eða ráðstýrur til að sækja veislur fyrirtækja. Hvað fá fyrirtækin út úr því? Er ekki nóg af góðum veislustjórum í boði?
Þar af leiðandi kem ég aftur að því sem ég nefndi áðan. Nýr flokkur er nauðsynlegur fyrir þetta land. Þá er ég ekki að tala um Framfaraflokkinn sem nú er verið að stofna. Ég get ekki annað en sett stórt spurningamerki við flokk sem ætlar að tefla fram manni eins og Sturlu Jónssyni atvinnubílstjóra. Eins ágætir og hann kann að vera, þá tel ég hann á rangri hillu þegar að stjórnmálum og framkomu í fjölmiðlum. Slíkt hefur sannað sig.
Svo væri að sjálfsögðu mikilvægt að fá að sjá hverjir það eru sem styrkja framboð flokkanna. Það ætti að vera sjálfsagður hlutur til að geta dæmt um hverja skuli kjósa. Réttast væri nánast að kjósa þá sem þiggja fæsta styrki. Þeir hljóta þá að vera óháðir þegar að ákvörðunum kemur í mikilvægum málum.
Og svo þetta í lokin. Það er vitað að mikil óánægja er með störf ríkisstjórnar, stjórn seðlabankans og fjármálaeftirlitsins. Er ekki rétt að skoða hvaða skref þurfi að taka í kjölfarið og þá sérstaklega þegar gengið verður til kosninga á ný, hvenær sem það verður. Hvaða lausn viljum við finna?
|
„Stórkostlegur fundur“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.11.2008 | 01:06
Mótmælendur samsekir 14-16 ára unglingum?
Mér þykir mjög miður að örfáir krakkar hafi getað sett svartan blett á annars friðsamleg mótmæli 7-8000 manns.
Mótmælin sjálf eiga fullan rétt á sér og þörf að mörgu leyti. Hins vegar verður ekki hjá því litið að þegar þessir örfáu krakkar leita sér skjóls í fjöldanum meðan þeir henda hlutum í alþingishúsið þá eru þeir sem hjá standa samsekir.
Auðvelt hefði verið að stöðva þetta og henda þeim út úr hópnum. Krakkarnir gerðu ekkert nema að skemma fyrir.
Með þessu hafa þeir sem verið er að mótmæla fengið "bandamenn" og fá að kalla mótmælin skrílslæti.
|
Örsmár hópur ungmenna grýtir þinghúsið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2008 | 13:18
Fögur er hlíðin... ég fer hvergi!
„Fögur er hlíðin svo að mér hefir hún aldrei jafnfögur sýnst, bleikir akrar en slegin tún, og mun ég ríða heim aftur og fara hvergi.“ Gunnar á Hlíðarenda.
Svo er bara ekkert víst að grasið verði eitthvað grænna hinumegin.
|
Þriðjungur þjóðarinnar vill flytja |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.11.2008 | 20:54
Aðgát skal höfð!!!
Með fyrirsögninni er enn og aftur verið að dæma landið gjaldþrota. Flestir ef ekki allir sjáandi og heyrandi vita að staða landsins er slæm. Hvaða gagn er í svona ég bara spyr? Í þessarri frétt er ekkert nýtt sem kemur fram. Fæstir skilja hins vegar hvað það þýðir að Ísland verði gjaldþrota.
Og ef um tilvitnun er að ræða í skrif eða ræðu einhvers, væntanlega Jóns Daníelssonar í Financial Times í þessu tilviki, ætti fréttamaður þessa greinar sem ég nú skrifa við í það minnsta að bæta svo sem gæsalöppum fyrir framan og aftan fyrirsögnina. Fyrirsögnin "Ísland stendur frammi fyrir gjaldþroti" hefur töluvert aðra merkingu.
Er ekki nóg komið með þennan hræðsluáróður í skjóli "upplýsingar".
Svo mæli ég með að menn hlusti á Lofsönginn, þjóðsöng okkar, reglulega til að stappa í okkur stálinu.
Íslendingar ... verið stoltir þó að á móti blási!
|
Ísland stendur frammi fyrir gjaldþroti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)


malacai
valgeir
godpool
jonvalurjensson
sigurjon